Hvað gefur maður þeim sem virðast eiga allt? Oft er svarið gjöf sem enginn annar gæti gefið: gjöf með myndum, nöfnum og minningum sem skipta máli. Hér eru hugmyndir að persónulegum jólagjöfum sem þú hannar sjálf/ur á netinu og við prentum.
Fyrir fjölskylduna: plakat með öllum á heimilinu
Nútímaleg útgáfa af gamla „Heima er best“ skiltinu. Þú raðar saman fjölskyldunni, gæludýrin með, og skrifar nöfnin undir. Fallegt í forstofuna og sniðug gjöf handa ömmu og afa.
Dagatal með myndum af fjölskyldunni
Dagatal með myndum er gjöf sem gleður allt árið. Þú getur valið lítil spjöld á ísskápinn eða í stand, A4 skipulagsdagatal með vikunúmerum eða stórt 30x42 cm myndadagatal. Frídagar eru merktir í rauðu og þú getur sett inn afmæli og aðra viðburði.
Ertu ekki viss hvaða stærð hentar? Lestu yfirferðina okkar um persónuleg dagatöl eða skoðaðu öll dagatölin.
Plakat um manneskjuna sem þér þykir vænt um
Settu mynd og nafn á plakat og skrifaðu undir það allt sem þér finnst frábært við manneskjuna. Textinn má vera hjartnæmur eða fyndinn, eða bæði. A4 stærðin (21x30 cm) er nóg og gjöfin kostar ekki mikið.
Hannaðu plakat með mynd og texta
Íþróttaplakat með myndum frá árinu
Fyrir þau sem æfa fótbolta, handbolta, fimleika, sund, dans eða hvað sem er. Safnaðu saman myndum frá tímabilinu og bættu við nafni, texta og merki félagsins. Íþróttaplakötin fást í 30x40 og 50x70 cm.
Fyrir nýjasta fjölskyldumeðliminn
Fyrstu jólin hjá litla krílinu? Fæðingarplakat með nafni, fæðingardegi, þyngd og lengd, eða nafnaplakat fyrir barnaherbergið, eru gjafir sem foreldrarnir geyma.
Bók til að skrifa í
Fyrir matgæðinginn er uppskriftabókin sniðug, með pláss fyrir 100 uppáhaldsuppskriftir. Fyrir þau sem ætla að taka nýja árið með trompi eru matardagbókin og æfingadagbókin góð byrjun.
Pantaðu tímanlega
Hannaðar vörur geta tekið allt að 5 virka daga í framleiðslu og afhending með Íslandspósti eða Dropp tekur 3 til 5 daga. Þú getur líka sótt pöntunina til Pixel í Ármúla 1 alla virka daga milli 8:00 og 16:00.
Sjá öll plaköt, dagatöl og dagbækur, eða lestu hvernig plakötin okkar eru prentuð.






