Skilaréttur

Skil og endurgreiðslur

Skilaréttur

Þegar þú kaupir tilbúna vöru á netinu hefur þú 14 daga skilarétt samkvæmt lögum nr. 16/2016 um neytendasamninga. Fresturinn telst frá þeim degi sem þú færð vöruna í hendur.

Sérpöntuðum vörum er ekki hægt að skila. Bækur, dagatöl, plaköt og aðrar vörur sem eru gerðar sérstaklega fyrir þig, til dæmis með nafni, texta eða myndum sem þú velur í hönnunarforritinu, eru undanþegnar skilarétti samkvæmt lögunum. Ef slík vara er gölluð gildir kaflinn um gallaðar vörur hér fyrir neðan.

Svona skilar þú vöru

  1. Láttu okkur vita í gegnum skrudda@kilja.is innan 14 daga frá því að þú fékkst vöruna. Taktu fram pöntunarnúmerið.
  2. Sendu vöruna til baka eða komdu með hana í Pixel, Ármúla 1, 108 Reykjavík, innan 14 daga frá því að þú lést okkur vita.
  3. Kostnað við að senda vöruna til baka greiðir þú sjálf/ur.

Varan á að vera í sama ástandi og þegar þú fékkst hana. Þú mátt skoða hana eins og í verslun, en ef hún hefur rýrnað vegna meiri notkunar getum við dregið verðrýrnunina frá endurgreiðslunni.

Endurgreiðsla

Við endurgreiðum vöruna og upprunalegan sendingarkostnað (ódýrustu sendingarleið sem í boði var) innan 14 daga frá því að þú lést okkur vita. Endurgreitt er með sama hætti og greitt var, yfirleitt inn á greiðslukortið sem notað var. Við megum bíða með endurgreiðsluna þar til varan hefur borist okkur.

Gallaðar vörur

Ef vara er gölluð gilda lög nr. 48/2003 um neytendakaup, líka fyrir sérpantaðar vörur. Hafðu samband í gegnum skrudda@kilja.is sem fyrst eftir að þú tekur eftir gallanum, með pöntunarnúmeri og lýsingu eða mynd af gallanum. Við prentum vöruna aftur eða endurgreiðum hana, þér að kostnaðarlausu.

Spurningar

Hafðu samband í gegnum skrudda@kilja.is.


Returns and refunds (English)

Right of withdrawal

When you buy a ready-made product online you have a 14-day right of withdrawal under the Icelandic Consumer Contracts Act (lög nr. 16/2016). The 14 days start on the day you receive the product.

Personalised products cannot be returned. Books, calendars, posters and other products made specially for you, for example with a name, text or photos you choose in the design tool, are exempt from the right of withdrawal under the Act. If such a product is defective, the section on defective products below applies.

How to return a product

  1. Tell us via skrudda@kilja.is within 14 days of receiving the product. Include your order number.
  2. Send the product back, or bring it to Pixel, Ármúli 1, 108 Reykjavík, within 14 days of telling us.
  3. You pay the cost of sending the product back.

The product should be in the same condition as when you received it. You may inspect it as you would in a shop, but if it has lost value through further use, we may deduct that from the refund.

Refund

We refund the product and the original shipping cost (the cheapest delivery option offered) within 14 days of you telling us. The refund goes back the same way you paid, normally to the card you used. We may wait with the refund until the product has reached us.

Defective products

If a product is defective, the Icelandic Consumer Sales Act (lög nr. 48/2003) applies, also to personalised products. Contact us via skrudda@kilja.is as soon as you notice the defect, with your order number and a description or photo of the defect. We reprint the product or refund it, free of charge.

Questions

Contact us via skrudda@kilja.is.