Meðferð persónuuplýsinga
Persónuverndarstefna
Þessi stefna lýsir hvernig Kilja.is vinnur persónuupplýsingar þegar þú heimsækir vefverslunina eða kaupir vöru. Ábyrgðaraðili vinnslunnar er Kilja.is. Fullar söluaðilaupplýsingar eru í skilmálum.
Hvaða upplýsingar söfnum við
- Nafn, heimilisfang, netfang og símanúmer, til að afgreiða og senda pöntun.
- Greiðsluupplýsingar. Þær fara í gegnum öruggan greiðsluþjónustuaðila sem sér um kortagreiðslur og eru ekki vistaðar hjá Kilja.is.
- Pöntunarsaga og samskipti við þjónustuver.
- Efni sem þú hleður inn í Taopix hönnunarforritið fyrir sérpantaðar vörur, t.d. texti og myndir sem þú velur fyrir þína vöru.
- Upplýsingar um notkun vefsíðunnar, safnað með vafrakökum, sjá hér fyrir neðan.
Til hvers notum við upplýsingarnar
- Til að afgreiða, framleiða og senda pöntun þína eða hafa hana tilbúna til afhendingar.
- Til að eiga samskipti við þig um pöntunina.
- Til að uppfylla bókhalds- og skattalög.
- Til tölfræði um notkun vefsíðunnar og, með samþykki þínu, til markaðssetningar.
Hverjir fá aðgang að upplýsingunum
Upplýsingarnar eru unnar af eftirfarandi aðilum fyrir hönd Kilja.is:
- Shopify, sem hýsir vefverslunina og vinnur pöntunina.
- Greiðsluþjónustuaðili sem sér um kortagreiðslur.
- Pósturinn og Dropp, þegar pöntun er send í pósti.
- Taopix, framleiðslukerfið sem vinnur úr sérpöntuðum vörum.
- Google Analytics, til tölfræði um notkun vefsíðunnar.
- Meta (Facebook og Instagram), Google (Google Ads og YouTube) og Microsoft Advertising, aðeins ef þú samþykkir markaðskökur, til að mæla árangur auglýsinga.
Við seljum persónuupplýsingar þínar ekki til ótengdra aðila.
Hversu lengi eru upplýsingar varðveittar
Texta, myndum og öðrum skrám sem þú hleður inn, meðal annars í Taopix hönnunarforritið, er eytt í síðasta lagi tveimur árum eftir pöntun.
Pöntunar- og bókhaldsgögn eru varðveitt eins lengi og íslensk bókhaldslög krefjast (lög nr. 145/1994 um bókhald), það er 7 ár.
Réttindi þín
Þú hefur rétt til að:
- fá aðgang að þeim upplýsingum sem við höfum um þig,
- fá rangar upplýsingar leiðréttar,
- fá upplýsingum eytt þar sem lög heimila,
- andmæla vinnslu eða draga samþykki til baka,
- fá afrit af upplýsingum þínum (gagnaflutningsréttur).
Til að nýta þessi réttindi, hafðu samband í gegnum skrudda@kilja.is. Þú getur líka sent kvörtun til Persónuverndar (personuvernd.is).
Öryggi
Greiðsluupplýsingar eru alltaf sendar um örugga, vottaða greiðslusíðu.
Vafrakökur
Kilja.is notar vafrakökur til að vefsíðan virki og til að bæta notendaupplifun.
Nauðsynlegar vafrakökur
Þessar kökur koma frá Shopify og gera innskráningu, körfu og greiðslu mögulega. Vefsíðan virkar ekki án þeirra.
Tölfræðikökur
Google Analytics. Þessar kökur hjálpa okkur að skilja hvernig vefsíðan er notuð. Upplýsingarnar eru ekki notaðar til að auðkenna þig persónulega.
Markaðskökur
Kökur frá Meta (Facebook og Instagram), Google (Google Ads og YouTube) og Microsoft Advertising. Þær mæla hvort auglýsingar okkar leiði til heimsókna og kaupa. Þær eru aðeins virkar ef þú samþykkir markaðskökur og þú getur breytt því vali hvenær sem er.
Þú getur stýrt eða slökkt á vafrakökum í stillingum vafrans þíns.
Spurningar
Hafðu samband í gegnum skrudda@kilja.is.
Privacy policy (English)
This policy describes how Kilja.is processes personal data when you visit the online store or make a purchase. Kilja.is is the data controller. Full seller details are in the terms of service.
What we collect
- Name, address, email and phone number, to process and deliver your order.
- Payment information. This goes through a secure payment service provider that handles card payments and is not stored by Kilja.is.
- Order history and customer-service communication.
- Content you upload to the Taopix design tool for personalised products, such as text and photos you choose for your product.
- Information about how you use the website, collected through cookies, see below.
What we use it for
- To process, produce and deliver your order, or have it ready for pickup.
- To communicate with you about your order.
- To comply with accounting and tax law.
- For website statistics and, with your consent, for marketing.
Who has access to the information
The information is processed by the following parties on behalf of Kilja.is:
- Shopify, which hosts the store and processes the order.
- A payment service provider that handles card payments.
- Pósturinn and Dropp, when an order is shipped.
- Taopix, the production system that processes personalised products.
- Google Analytics, for website statistics.
- Meta (Facebook and Instagram), Google (Google Ads and YouTube) and Microsoft Advertising, only if you accept marketing cookies, to measure how our ads perform.
We never sell your personal data to unrelated third parties.
How long we keep it
Text, images and other files you upload, including in the Taopix design tool, are deleted at most two years after the order.
Order and accounting records are kept as long as Icelandic bookkeeping law requires (lög nr. 145/1994 um bókhald), which is 7 years.
Your rights
You have the right to:
- access the information we hold about you,
- have incorrect information corrected,
- have information deleted where the law allows,
- object to processing or withdraw consent,
- receive a copy of your data (data portability).
To use these rights, contact us at skrudda@kilja.is. You can also file a complaint with the Icelandic Data Protection Authority (Persónuvernd, personuvernd.is).
Security
Payment information is always sent over a secure, certified payment page.
Cookies
Kilja.is uses cookies to make the website work and to improve the user experience.
Necessary cookies
These come from Shopify and make sign-in, the cart and checkout possible. The site does not work without them.
Statistics cookies
Google Analytics. These help us understand how the site is used. The information is not used to identify you personally.
Marketing cookies
Cookies from Meta (Facebook and Instagram), Google (Google Ads and YouTube) and Microsoft Advertising. They measure whether our ads lead to visits and purchases. They are only active if you accept marketing cookies, and you can change that choice at any time.
You can manage or disable cookies in your browser settings.
Questions
Contact us at skrudda@kilja.is.