Hvaða gjöf hittir beint í hjartað, en tekur samt bara nokkrar mínútur að búa til? Persónulegt plakat. Þú velur hugmyndina, setur inn nöfn, dagsetningar, staði eða myndir, og sérð plakatið eins og það verður prentað. Við prentum plakatið á Íslandi.
Hér eru tíu plaköt sem þú hannar á kilja.is.
Stóri dagurinn
Nöfnin ykkar og dagurinn sem skiptir máli, með stjörnuhimninum eins og hann var þessa nótt, Íslandskortinu með hjarta á staðnum eða upphafsstöfunum. Falleg gjöf fyrir brúðkaup, trúlofun eða afmæli sambandsins. Búðu til Stóra daginn
Íslandsmynd
Heimabærinn, uppáhaldsstaðurinn eða staðurinn þar sem allt byrjaði: vatnslitamynd af íslenskum stað, með nafni staðarins og þinni eigin línu. Sömu myndir og í dagatölunum okkar, og núna líka íslensku dýrin. Skoða Íslandsmynd
Hverfiskort
Hvaða gata á sérstakan stað í hjarta þínu? Finndu heimilið, æskuslóðirnar eða uppáhaldshverfið, veldu útlit og liti og skrifaðu nafn staðarins neðst. Búðu til hverfiskort
Barnaplakat
Fyrir nýja barnið eða barnaherbergið: nafnið í kubbum, í stafrófinu eða með fæðingardegi, tíma, þyngd og lengd. Búðu til barnaplakat
Fermingarplakat
Nafnið, dagurinn og fermingarversið, með stjörnuhimninum eins og hann var nóttina sem barnið fæddist og lífinu í tölum. Líka fyrir borgaralega fermingu. Skoða Fermingarplakat
Leiðin
Maraþonið, hjólaferðin eða gangan yfir hálendið: leiðin þín sem lína á plakati, með hæðarlínu, vegalengd og tíma. Settu inn GPX skrá úr úrinu eða veldu tilbúna leið, eins og Laugaveginn eða Fimmvörðuháls. Teikna Leiðina
Fólk
Mynd af þér eða ykkur verður að málverki í búningi eða að skemmtilegri skopmynd. Þú velur stílinn. Skoða Fólk
Gæludýramynd
Hundurinn eða kötturinn á vegginn: mynd af gæludýrinu verður að málverki. Skoða Gæludýramynd
Treyjuplakat
Treyja í litum liðsins, með nafninu og númerinu sem þú velur. Leitaðu að liðinu og plakatið fær litina strax. Búðu til treyjuplakat
Tilvitnun
Uppáhaldssetningin, lífsmottóið eða það sem amma sagði alltaf, sett upp sem fallegt plakat. Skoða Tilvitnun
Algengar spurningar
Sé ég plakatið áður en ég panta?
Já, þú sérð plakatið eins og það verður prentað á meðan þú hannar það.
Hvar er plakatið prentað?
Á Íslandi.
Hvenær þarf ég að panta fyrir jól?
Síðasti pöntunardagur fyrir jól er laugardagurinn 19. desember.
Ertu með spurningu? Sendu okkur línu á saga@kilja.is eða spjallaðu við okkur á síðunni.


