Út er komin platan „Jólasveinarnir mínir“ með Grýlugenginu. Á henni eru sextán ný íslensk jólalög fyrir börn: eitt lag fyrir hvern af jólasveinunum þrettán, og að auki lög um Grýlu, Leppalúða og jólaköttinn.
Hvert lag segir frá sínum jólasveini, hvað hann heitir og hvað hann gerir, svo börnin læri að þekkja þá alla. Þvörusleikir er langur og mjór, Stúfur er lítill, Gluggagægir sér þig og Ketkrókur vill ket.
Lögin eru sett saman eins og jóladagatal: Stekkjastaur kemur fyrstur 12. desember og Kertasníkir síðastur á aðfangadag, og það má hlusta á lag dagsins á hverju kvöldi.
Kilja gefur út. Platan er komin á Spotify, Apple Music og aðrar streymisveitur.
Öll lögin, myndböndin og textarnir eru hér á Jólalögunum.
Hlusta: Spotify · Apple Music · YouTube Music
Myndböndin: YouTube


