Staðurinn þinn á vegginn, Íslandsmynd með þinni línu

Staðurinn þinn á vegginn, Íslandsmynd með þinni línu

Hvaða staður á Íslandi á sérstakan stað í hjarta þínu? Heimabærinn, sumarbústaðurinn, fossinn þar sem þið trúlofuðust eða fjörðurinn hennar ömmu? Íslandsmynd er mynd af þeim stað, í hlýjum vatnslitastíl, með nafni staðarins og þinni eigin línu undir. Tilbúin á vegginn.

Staðirnir sem þið nefnduð

Þegar við spurðum í gjafaleiknum okkar hvaða staður ætti að vera á næsta dagatali, svöruðu tæplega níutíu manns. Hellisgerði, Ásbyrgi, Seyðisfjörður, Akureyri, Rauðisandur og Grímsey voru nefnd oftast, og þau eru öll komin á Íslandsmynd.

Hellisgerði, Ásbyrgi, Seyðisfjörður og Akureyri á Íslandsmynd

Línan gerir hana að þinni

Gullfoss með „Brúðkaupsferðin 2025“ verður minning um ferðina. Vestmannaeyjar með „Hvergi betra en heima“ verður gjöf til þeirra sem fluttu burt. Akureyri með nafni ömmu og afa verður myndin sem allir þekkja í stofunni.

Íslandsmynd af Gullfossi í hring með línunni Brúðkaupsferðin 2025

Íslandsmynd af Vestmannaeyjum með línunni Hvergi betra en heima

Rétt, ekki bara fallegt

Fólk þekkir staðina sína og sér strax ef fjallið er vitlaust. Þess vegna berum við hvern stað saman við raunveruleikann og lögum það sem er rangt. Kirkjufell er gott dæmi: toppurinn hallar til hægri og bergsyllurnar eru láréttar, og þannig á það að vera á myndinni.

Kirkjufell fyrir og eftir að fjallið var lagað

Tveir eða þrír saman

Allar myndirnar eru í sama stíl, svo þær passa saman. Það er fallegt að velja tvo eða þrjá staði og hengja þá upp saman, til dæmis staðinn sem þú ert frá og staðinn sem þú býrð á núna.

Fjórar Íslandsmyndir í sama stíl hlið við hlið

Svona býrðu hana til

Þú velur staðinn, uppsetninguna, letrið á nafninu og litina, og skrifar þína eigin línu. Myndin er prentuð á Íslandi eftir pöntun, frá 30 × 40 cm upp í 50 × 70 cm.

Búðu til þína Íslandsmynd

Finnurðu ekki staðinn þinn? Sendu okkur línu, við bætum við stöðum jafnt og þétt.

Vörur í greininni

Fleiri greinar

Öll bloggin