Sögur um jólasveinana fyrir börnin

Fimm jólasveinabækur á borði

Hvað gerir Stekkjastaur þegar hann kemur til byggða? Og hvernig fer Stúfur að því að ná í pönnurnar? Við höfum gert stuttar sögur um jólasveinana sem börnin geta horft á, og jólalög til að hlusta á með.

Horfðu á sögurnar

Sögurnar eru allar á einum stað, í spilunarlistanum Jólasveinarnir á YouTube. Þær henta vel á kvöldin í desember, til dæmis áður en skórinn fer út í glugga. Ef þú vilt vita hvaða jólasveinn kemur hvaða nótt, þá er röðin í greininni Hvenær koma jólasveinarnir til byggða?.

Hlustaðu á jólalögin

Jólalögin okkar eru í spilunarlistanum Jólalög á YouTube. Bæði sögurnar og lögin eru líka á síðunni Jólastundin á kilja.is, þar sem auðvelt er að finna þau aftur.

Notaleg jólastemning

Á sömu síðu er líka spilunarlistinn Jólastemning: arineldur og notaleg jólastund í eldhúsinu, með eða án jólatónlistar. Hann hentar vel í gangi á aðventunni, til dæmis á meðan fjölskyldan bakar eða pakkar inn gjöfum.

Bók um hvern jólasvein

Hver jólasveinn fær líka sína eigin bók, og það sama á við um Grýlu, Leppalúða og Jólaköttinn. Fyrstu bækurnar eru komnar og hinar bætast við fram að jólum. Bækurnar eru til í tveimur útgáfum:

  • Með nafni barnsins: barnið þitt er aðalpersónan og nafnið birtist í sögunni sjálfri. Þú skrifar nafnið og kveðju og sérð bókina áður en þú pantar. Byrjaðu á Stekkjastaur með nafni barnsins.
  • Tilbúin bók: sama saga, prentuð með nafninu Hafrún, tilbúin til pöntunar án þess að hanna neitt. Sjá Stekkjastaur, tilbúin bók.

Bækurnar eru heftaðar, í A5-stærð (14,8 × 21 cm). Þú finnur þær allar, ásamt jólakortum, merkimiðum, spili og fleiru, í jólavörunum okkar.

Algengar spurningar

Kosta sögurnar á YouTube eitthvað?
Nei, þær eru opnar öllum á YouTube.

Er hægt að fá bókina með nafni barnsins?
Já. Veldu „Með nafni barnsins“ á síðu bókarinnar, skrifaðu nafnið og þú sérð bókina áður en þú pantar.

Hvað er tilbúin bók?
Sama saga, prentuð með nafninu Hafrún. Hún hentar vel ef þú vilt ekki hanna neitt, eða ef þú kaupir margar í einu.

Vörur í greininni

Fleiri greinar

Öll bloggin